Burstar og kústar, smíðaðir á Íslandi síðan 1930
Burstagerðin framleiðir bílakústa fyrir þvottaplönin, verksmiðju-, gólf- og þakkústa, Durol-burstamottur eftir máli og sérsmíðaða bursta fyrir fiskiðnað og álver.
Við seljum líka hreinlætisvélar frá i-team og Cleanfix, ásamt auka- og varahlutum. Hreinlætisvélar
Strákústur · Rautt nylon (0,8 mm), 8 cm hárSkoða vöru
Hvað vantar þig?
- 01Kústar og burstarVerksmiðju-, gólf-, glugga- og þakkústar, sópar og burstar úr eigin framleiðslu.

- 02Durol-burstamotta eftir máliAnddyrismotta sem heldur óhreinindum úti, smíðuð eftir þínum málum.

- 03Sérsmíðaður burstiBurstar fyrir vélar í fiskiðnaði, álverum og öðrum iðnaði.

- 04Hreinlætisvélar og varahlutirGólfþvottavélar, ryksugur og fylgihlutir frá i-team og Cleanfix.


Kústurinn á bílaþvottaplönum landsins
Bílakústurinn er hannaður af Burstagerðinni og hefur verið framleiddur hjá okkur í hartnær 30 ár. Hann er notaður á nánast öllum bílaþvottaplönum landsins.
- Hárin þola kemísk efni eins og tjöru og olíur mjög vel
- Fæst líka með hitaþolnum hárum fyrir þá sem þvo heima með heitu vatni
- Skaftið er úr léttu áli, 130 cm, sérhannað fyrir kústinn
BílakústurinnVnr. 1003442.923 kr.
Bílakústskaft, 130 cm álVnr. 10229924.948 kr.Durol-burstamottan, smíðuð eftir máli
Durol-burstamottan heldur óhreinindum úti og tryggir að 70% minna af óhreinindum berist inn í húsið. Hún er úr sterkum plastefnum, samsett með ryðfríum vír og þolir íslenska veðráttu.
Það tekur að jafnaði 2 daga að afgreiða meðalstærð af mottu.
- Háskólinn í Reykjavík
- Kringlan
- Smáralind
- Hótel Loftleiðir
- Hótel Hilton
Burstar fyrir vélarnar þínar
Burstagerðin framleiðir ýmsar gerðir af burstum og kústum fyrir atvinnulífið. Þetta eru nokkur dæmi úr framleiðslunni.

Ísburstakeflið
Hreinsar ís ofan af fiskikörum

Skautbursti
Í vél sem hreinsar skautgaffla áður en þeir eru steyptir á ný kol

Þétting í skautblásara
Þéttir sand og ryk sem annars fýkur út um allt. Hönnuð af álverinu, hárin sett í hjá okkur

Beitningaburstinn
Framleiddur í beitningarvélar. Verð fer eftir magni

Blóðhreinsibursti
Í vél sem hreinsar blóð úr dálkasvæðinu í fiskinum, sérsniðinn eftir þörfum kaupanda

Blóðhreinsibursti um borð
Fyrir fiskvinnsluvél um borð í Guðmundi VE. Ekki lagervara heldur smíðaður eftir óskum kaupanda
Hvaða gólfþvottavél hentar?
i-mop vélarnar frá i-team ganga fyrir rafhlöðum. Dragðu sleðann að stærð gólfsins og sjáðu hvaða vél nær yfir það á einni hleðslu.

- i-mop lite500–600 m² á hleðslu · vinnslubreidd 37 cmMeira en ein hleðsla
- i-mop XL1.000–1.300 m² á hleðslu · vinnslubreidd 46 cmEin hleðsla dugar
- i-mop 361.300 m² á 60 mínútumEin hleðsla dugar
- i-mop XXL1.200–1.800 m² á hleðslu · vinnslubreidd 62 cmEin hleðsla dugar
Tölur um afköst eru úr vörulýsingum framleiðanda. Fyrir enn stærri fleti eru i-drive með i-mop lite á bakinu og sjálfvirka co-botic 65 skúringarvélin. Allar hreinlætisvélar
Frá handavinnu á Laugavegi til Vesturhrauns
Hróbjartur Árnason burstagerðarmeistari stofnaði Burstagerðina 1. maí 1930. Sonur hans, Friðrik Hróbjartsson, tók síðar við rekstrinum.
- 1930Stofnuð 1. maí
Hróbjartur Árnason burstagerðarmeistari stofnar Burstagerðina eftir nám í Danmörku. Hann er eini Íslendingurinn sem fékk meistarabréf í iðninni.
- 1937Laugavegur 96
Eftir sjö ár í leiguhúsnæði flytur Burstagerðin í eigið hús þar sem hún starfar í 30 ár. Bursta- og penslagerð er handavinna, 12–14 manns við framleiðsluna og íslenskt hrosshár keypt af bændum.
- 1942Fyrsta vélin
Fyrsta burstagerðarvélin kemur til landsins frá Bandaríkjunum og framleiðsluhraðinn breytist mikið.
- 1953Nýir stjórnendur
Hróbjartur fellur frá og Sigurbergur Árnason, bróðir hans, stýrir fyrirtækinu til 1959. Friðrik Hróbjartsson tekur síðar við rekstrinum.
- 1966Auðbrekka, Kópavogi
Sjálfvirkar vélar kalla á meira pláss og nýtt iðnaðarhús er byggt. Flutt inn 1. maí.
- 1980Smiðsbúð 10, Garðabæ
1000 fermetra iðnaðarhús byggt vegna aukins innflutnings á handverkfærum og hreingerningavörum.
- 1988Besta og véladeild
Synir Friðriks koma til starfa, systurfyrirtækið Besta ehf. er stofnað og véladeild sem síðar verður Aflvélar ehf.
- 2003Suðurlandsbraut 26
Húsnæðið í Sigtúni keypt og endurnýjað, í hjarta Reykjavíkur.
- Í dagVesturhraun 3, Garðabæ
Sérhæfðir burstar fyrir fiskiðnað og annan iðnað, bílakústar fyrir þvottaplönin, verksmiðju-, gólf- og þakkústar og Durol-burstamottur eftir máli.
Komdu við í Vesturhrauni
Opnunartími- Vesturhraun 3
210 Garðabær - 480 0030
- sala@burstagerdin.is
