OpnunartímiVesturhraun 3, 210 Garðabær
Burstagerðin – Íslenzkur iðnaður

Burstagerðin síðan 1930

Burstagerðin var stofnuð af Hróbjarti Árnasyni burstagerðarmeistara 1. maí 1930. Hann hafði lært iðnina í Danmörku og var brautryðjandi á þessu sviði hér á landi.

Merki Burstagerðarinnar: Íslenzkur iðnaður

Frá handavinnu til sérsmíði

Fyrstu árin var bursta- og penslagerð eingöngu handavinna og 12–14 manns við framleiðsluna. Nær öll burstatré voru smíðuð á staðnum og íslenskt hrosshár keypt af bændum víðsvegar að og notað í ýmsa bursta og pensla.

Hróbjartur kenndi meðal annars þeim mönnum sem síðan þjálfuðu blinda í burstagerð, og margir kynntust burstahnýtingum í kvöldskóla K.F.U.M. undir hans stjórn.

Leiðin hefur ekki alltaf verið greið. Á stríðsárunum var skortur á aðföngum og á eftirstríðsárunum tóku innflutningshöftin við allt til ársins 1955. Þá þurfti innflutningsleyfi fyrir öllum hráefnum og stundum fengust leyfi aðeins frá löndum eins og Brasilíu eða Úrúgvæ.

Samkeppni frá Asíulöndum á ódýrum fjöldaframleiddum vörum er mikil. Í dag framleiðum við því meira af sérhæfðum burstum fyrir fiskiðnaðinn og annan iðnað, en einnig bílakústa fyrir þvottaplönin, verksmiðjukústa, gólfkústa og þakkústa í háum gæðaflokki, og Durol-anddyrismottur eftir máli.

„Það er samt enginn uppgjafartónn hjá forráðamönnum Burstagerðarinnar í dag.“Friðrik Hróbjartsson, Garðabæ 30. apríl 2010
Bílakústur úr framleiðslu Burstagerðarinnar
Bílakústurinn, hannaður og framleiddur hjá Burstagerðinni.

Tímalína

  1. 1930

    Stofnuð 1. maí

    Hróbjartur Árnason burstagerðarmeistari stofnar Burstagerðina eftir nám í Danmörku. Hann er eini Íslendingurinn sem fékk meistarabréf í iðninni.

  2. 1937

    Laugavegur 96

    Eftir sjö ár í leiguhúsnæði flytur Burstagerðin í eigið hús þar sem hún starfar í 30 ár. Bursta- og penslagerð er handavinna, 12–14 manns við framleiðsluna og íslenskt hrosshár keypt af bændum.

  3. 1942

    Fyrsta vélin

    Fyrsta burstagerðarvélin kemur til landsins frá Bandaríkjunum og framleiðsluhraðinn breytist mikið.

  4. 1953

    Nýir stjórnendur

    Hróbjartur fellur frá og Sigurbergur Árnason, bróðir hans, stýrir fyrirtækinu til 1959. Friðrik Hróbjartsson tekur síðar við rekstrinum.

  5. 1966

    Auðbrekka, Kópavogi

    Sjálfvirkar vélar kalla á meira pláss og nýtt iðnaðarhús er byggt. Flutt inn 1. maí.

  6. 1980

    Smiðsbúð 10, Garðabæ

    1000 fermetra iðnaðarhús byggt vegna aukins innflutnings á handverkfærum og hreingerningavörum.

  7. 1988

    Besta og véladeild

    Synir Friðriks koma til starfa, systurfyrirtækið Besta ehf. er stofnað og véladeild sem síðar verður Aflvélar ehf.

  8. 2003

    Suðurlandsbraut 26

    Húsnæðið í Sigtúni keypt og endurnýjað, í hjarta Reykjavíkur.

  9. Í dag

    Vesturhraun 3, Garðabæ

    Sérhæfðir burstar fyrir fiskiðnað og annan iðnað, bílakústar fyrir þvottaplönin, verksmiðju-, gólf- og þakkústar og Durol-burstamottur eftir máli.

Vantar þig bursta, kúst eða mottu?

Skoða vöruúrvalHafa samband