Durol-burstamottan
Anddyrismottan sem Burstagerðin hefur framleitt í hartnær 30 ár. Hún er smíðuð eftir máli og að berja úr mottunni er liðin tíð.


70% minna af óhreinindum
Mottan heldur óhreinindum úti betur en nokkur önnur motta og fólk hreinsar skóna hvort sem það vill eða ekki.
Þolir íslenska veðráttu
Smíðuð úr sterkum plastefnum og samsett með ryðfríum vír. Mjög endingargóð.
Auðveld í þrifum
Henni má rúlla upp til að fjarlægja óhreinindi undan henni og hana má ryksuga, sápuþvo eða háþrýstiþvo.
Smíðuð eftir máli
Hægt er að panta mottu í öllum stærðum. Meðalstærð er að jafnaði afgreidd á 2 dögum.
Sláðu inn málin
Teikningin sýnir mottuna í réttum hlutföllum. Sendu okkur málin og við gerum þér tilboð.
Hvernig á að panta?
Það er mjög mikilvægt að gefa upp rétt mál, annaðhvort af mottunni sjálfri (mottumál) eða af grifjunni (stíft mál).
Spurningar? Hafðu samband- Mottumál eða grifjaSé mottan ætluð í grifju þarf að gefa upp mál grifjunnar sjálfrar. Best er að grifjan sé 18–25 mm á dýpt.
- Mældu nákvæmlegaÞegar mottan á að fara í grifju skal mæla grifjuna mjög nákvæmlega og athuga hvort hún sé hornrétt.
- Breidd fyrst, svo lengdMál „A“ (breidd) er gefið upp fyrst og síðan mál „B“ (lengd), A × B.
- Engin grifja?Þá er hægt að fá álþröskuld með 30° halla á annan eða báða enda.
- Við getum mæltHægt er að panta heimsókn þar sem við komum og mælum, á höfuðborgarsvæðinu.
Mottur frá Burstagerðinni eru í anddyrum helstu stofnana og stórmarkaða landsins, meðal annars:
- Háskólinn í Reykjavík
- Kringlan
- Smáralind
- Hótel Loftleiðir
- Hótel Hilton
